Halla og Jude í heimspressunni 20. febrúar 2007 12:15
Kynnum Höllu Vilhjálmsdóttur og breska leikarans Jude Law, eru gerð góð skil í bresku pressunni, í dag. Í The Sun eru birtar fjölmargar flennistórar myndir af Höllu, sem sögð er unaðslegur kynnir hjá hinum íslenska X-Factor. Talað er um kertaljósakvöldverð, sveitt pöbbarölt og kossaflens á dansgólfinu, sem hefði verið nóg til þess að fá dómara í X-Factor til þess að roðna. Það er kannski rétt að minnast þess að The Sun á það til að ganga dálítið langt í hástemmdum lýsingum sínum, og þær eru ekki allar mjög nákvæmar. Til dæmis er sagt frá því að Jude og Halla hafi farið á hinn dragfína klúbb Sirkus. Þar hafi þau látið vel hvort að öðru og svo horfið út í nóttina. The Sun vitnar í ónafngreindan gest á Sirkus sem fullyrðir að þau hafi ekki farið til þess að fá sér frískt loft. The Sun fullyrðir einnig að síðan Jude sneri heim til Englands hafi þau verið í stöðugu símasambandi. Sjálfsagt haft eftir jafn áreiðanlegum heimildarmanni og gestinum á Sirkus. The Sun rekur feril Höllu í stuttu máli. Segir frá leiklistarnámi hennar í Guilford í Surrey og að hún hafi unnið eitthvað fyrir ITV og BBC. Hjarta hennar stefni nú til Lundúna, þar sem hún vilji slá í gegn sem leikkona. Lesendum er boðið að bregðast við fréttum á The Sun og einn þeirra skrifar að ef allar konur á Íslandi líti út eins og Halla, sé hann fluttur norðureftir. Eina vandamálið sé hvernig í fjáranum eigi að bera fram eftirnafn hennar. Sjáið fréttina í The Sun hér...
Erlent Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira