Hráolíuverð nálægt 62 dölum á tunnu 8. mars 2007 12:05
Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór nálægt 62 dölum á tunnu á markaði í New York í Bandaríkjunum í dag en olíubirgðir í Bandaríkjunum drógust meira saman á milli vikna en spáð hafði verið. Gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir eldsneyti muni aukast þegar Bandaríkjamenn verða á faraldsfæti í sumar og er því spáð nokkurri hækkun á eldsneytisverði eftir því sem líður á árið. Í vikulegri skýrslu bandaríska olíumálaráðuneytisins, sem birt var í gær, yfir breytingar á olíubirgðastöðu vestanhafs, kemur fram að hráolíubirgðir drógust saman um 4,85 milljónir tunna á milli vikna. Þetta er tvöfalt meira en gert hafði verið ráð fyrir en olíubirðir Bandaríkjanna, sem er stærsti eldsneytismarkaður í heimi, nema nú 324,2 milljónum tunna. Þetta er engu að síður 5,8 prósentum yfir ársmeðaltali síðastliðinna fimm ára. Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði um 5 sent á markaði í New York í Bandaríkjunum í dag og fór í 61,87 dali á tunnu. Brent Norðursjávarolíua lækkaði hins vegar um 1 sent og fór í 62,49 dali á tunnu á markaði í Lundúnum í Bretlandi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira