Sjónvarpsrás þar sem þú ert dagskrárstjóri og framleiðandi 13. mars 2007 10:44
Sjónvarpsrás sem hefur enga eiginlega dagskrárliði - Current TV - er nú að ryðja sér til rúms í Bretlandi. Sjónvarpsrásin nýtur sívaxandi vinsælda í Bandaríkjunum en Al Gore, fyrrverandi varaforseti er einn stofnenda stöðvarinnar. Í stað þess að sjónvarpa hefðbundnum framleiddum sjónvarpsþáttum og fréttum reiðir rásin sig á þátttöku áhorfenda og myndskeið sem þeir senda inn. Ef þú ímyndar þér að þú bæðir tíu mismunandi ókunnuga einstaklinga að búa til stutt myndskeið sem ætti að lýsa óvenjulegum hliðum lífsins þar sem hvorki áhugamál þeirra né persónuleiki er sérstaklega áhugaverður og mundir svo horfa á allar myndirnar í röð án þess að hafa hugmynd um hvað kæmi næst eða hvort það mundi yfir höfuð vekja áhuga þinn þá kemstu nærri þeirri upplifun sem það er víst að horfa á Current TV. Hvert myndskeið varir um 3-8 mínútur og efst á skjánum sést hve langt er síðan myndskeiðið fór í loftið og hversu langt er þangað til næsta verður sýnt. Handahóf ræður því svo algjörlega hvaða myndskeið birtist næst. Eins og gefur að skilja kennir ýmissa grasa á Current TV en þar getur oft að líta mjög áhugaverða þætti þar sem tekið er á alvarlegum málum með öðrum hætti en gerist og gengur. Sem fyrr segir nýtur Current TV sívaxandi vinsælda í Bandaríkjunum en nú ná um 40 milljón heimili vestra rásinni. Nú þegar breskir sjónvarpsáhorfendur geta fylgst með rásinni má búast við því að vinsældir hennar vaxi enn. Eins geta internetnotendur um heim allan skoðað myndskeið Current TV á vefnum á slóðinni www.current.tv.
Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira