Vöxtur smásöluverslunar yfir spám í Bretlandi 22. mars 2007 10:30 Konur með innkaupapoka úr breskri verslun. Mynd/AFP
Smásöluverslun jókst um 1,4 prósent í Bretlandi í febrúar. Hækkunin nemur 4,9 prósentum á ársgrundvelli, samkvæmt upplýsingum bresku hagstofunnar. Þetta er nokkru meira en greinendur gerðu ráð fyrir. Þá er þetta talsverður viðsnúningur frá lokum síðasta árs en í nóvember og desember dróst smásöluverslun saman á milli mánaða. Að sögn hagstofunnar hefur smásöluverslun ekki aukist jafn hratt síðan í nóvember árið 2004. Greinendur eru ekki á einu máli hvernig túlka megi niðurstöðurnar og segja að þær geti aukið líkurnar á því að Englandsbanki hækki stýrivexti fyrir sumarið. Mesta aukningin var í sölu á skóm, fatnaði og vefnaðarvöru. Sala á þessum vöruflokkum jókst um 4,7 prósent og hefur ekki aukist jafn mikið í rúm fjögur ár.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira