Hráolíuverð ekki hærra á árinu 25. mars 2007 08:45
Heimsmarkaðsverð á hráolíu tók kipp eftir að Íranar tóku 15 breska sjóliða höndum á Persaflóa á föstudag. Verðið rauk upp í 62,65 bandaríkjadali á tunnu skömmu síðar en slík verðlagning á svartagullinu hefur ekki sést á mörkuðum á þessu ári. Verð á Brent Norðursjávarolíu fór í 63,68 dali á tunnu á markaði en þetta er hæst verð á olíutunnu síðan í nóvember í fyrra. Stjórnvöld í Íran og Bretlandi deila um það hvort sjóliðarnir hafi verið innan landhelgi Íran eður ei er þeir voru handteknir. Hvað sem því líður segja greinendur líkt og olíu hafi verið skvett á eld því helstu fjármálamarkaðir séu viðkvæmir fyrir hvers kyns tíðindum. Það hafi sýnt sig þegar olíuverðið rauk upp í kjölfar handtökunnar, að sögn breska ríkisútvarpsins. Verðið hefur dalað nokkuð á markaði í Bandaríkjunum síðan þá og stendur nú í 62,28 dölum á tunnu en verð á Brent Norðursjávarolíu stendur í 62,18 dölum á tunnu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira