Væntingavísitala lækkar í Bandaríkjunum 30. mars 2007 21:15 Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. MYND/AFP
Hátt verð á neysluvörum og laun sem hækka hægt eru helsta ástæða þess að væntingavísitala bandarískra neytenda hefur fallið. Hún hefur ekki verið lægri í hálft ár. Verðbólga hækkaði meira en búist var við í febrúar, eða um 0,3%, og er það mesta aukning síðan í ágúst á síðasta ári. Fyrr í vikunni sagði Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, að helsta hugðarefni bankans væri verðbólgan. Hins vegar benti hann á að það væru aðrar ógnir sem steðjuðu að bandarísku efnahagskerfi, eins og minni fjárfesting og minni viðskipti á fasteignamarkaði. Ummæli Bernanke skutu niður vonir fjárfesta um að seðlabankinn bandaríski myndi lækka stýrivexti sína á næstunni. Engu að síður hefur framleiðsla í sumum hlutum Bandaríkjanna aukist og neytendur virðast vera að eyða meira en þeir gerðu á sama tíma í fyrra. Mikill vöxtur er í nýbyggingum og einkaneyslu og það tvennt virðist halda aftur af hugsanlegri kreppu.
Erlent Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira