Finnan með annað augað á úrslitaleiknum 2. apríl 2007 13:08 NordicPhotos/GettyImages
Varnarmaðurinn Steve Finnan hjá Liverpool segist ekki geta neitað því að hann sé kominn með annað augað á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Liverpool mætir PSV Eindoven í fjórðungsúrslitum keppninnar annað kvöld í leik sem sýndur verður beint á Sýn klukkan 18:30. Finnan var í liði Liverpool sem lyfti Evrópubikanum í Istanbul fyrir tveimur árum og segist ekki geta neitað því að hann hugsi til þess að endurtaka leikinn í Aþenu í vor. "Þegar liðið er fimm leikjum frá því að endurtaka leikinn, væri ég að ljúga ef ég segði að maður væri ekki að hugsa um að vinna aftur. Næsti leikur verður okkur gríðarlega mikilvægur og Meistaradeildin er auðvitað eina keppnin sem við eigum möguleika á að vinna úr þessu," sagði Finnan og bætti við að sjálfstraustið væri í botni hjá enska liðinu eftir að það sló sjálfa Evrópumeistarana Barcelona úr keppninni. "Sigurinn á Barca gaf okkur sjálfstraust en við vitum að PSV er hættulegt lið þó við höfum ekki tapað fyrir þeim í tveimur síðustu leikjum. Þeir slógu Arsenal úr leik og því eru þeir hættulegir. Bæði lið þekkjast mjög vel og því verður þetta stál í stál," sagði varnarmaðurinn og bætti við að tilhugsunin um úrslitaleik milli Manchester United og Liverpool væri spennandi möguleiki. "Við eigum nú eftir að komast í gegn um PSV fyrst og svo annað hvort Chelsea eða Valencia - en því er ekki að neita að það yrði svakalegur leikur ef við myndum mæta United í enskum úrslitaleik. Það yrði frábært fyrir stuðningsmenn þessara erkifjenda," sagði Finnan í samtali við uefa.com.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira