Neyðarkall frá Karolinska -læknar þustu að úr öllum áttum 8. apríl 2007 13:12 Karolinska sjúkrahúsið í Huddinge.
Neyðarástand skapaðist þegar allt rafmagn fór af Karólinska háskólasjúkrahúsinu í Huddinge, í Svíþjóð í gær. Sérstaklega átti það við um gjörgæsludeild fyrir nýfædd börn sem voru í súrefniskassa. Vararafhlöðurnar þar tæmdust á aðeins fimmtán mínútum. Sent var út neyðarkall um neyðarboðleiðir sjúkrahússins og læknar og hjúkrunarfólk þusti að úr öllum áttum til þess að halda súrefniskössunum gangandi með handdælum. Rafmagnsleysið stóð í rúma klukkustund, en orsök hennar reyndist bilun í kapli sem stöðvaði straum bæði frá hinni almennu orkuveitu og vararafstöð sjúkrahússins. Á meðan á biluninnni stóð reyndi verulega á ímyndunarafl hjúkrunarliðsins við að halda viðkvæmustu stöðvum sjúkrahússins gangandi. Var þar gripið til hinna ótrúlegustu ráða. Meðal annars var stórum sjúkrabílum ekið inn á ganga sjúkrahússins og þeir notaðir sem rafstöðvar. Engum sjúklingi varð meint af þessu en stjórn sjúkrahússins hefur fyrirskipað algera endurskoðun á orkumálum. "Eitt stærsta neyðarsjúkrahús Svíþjóðar á ekki að geta orðið rafmagnslaust í heila klukkustund," segir Svante Baehrendtz, yfirlæknir.
Erlent Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Fleiri fréttir Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Sjá meira