Hraðamet internetsins slegið 25. apríl 2007 18:44
Hópur rannsóknarmanna undir stjórn Háskólans í Tókýo hafa slegið hraðamet internetsins tvisvar á tveimur dögum Stjórnendur háhraða Internet2 netsins tilkynntu á þriðjudaginn að þeir hefðu hinn 30. desember sent gögn á hraðanum 7.67 gígabit á sekúndu, með venjulegum samskiptareglum. Daginn eftir slógu þeir svo metið aftur með breyttum samskiptareglum og náðu með þeim hraðanum 9.08 Gbps . Gögnin fóru rúmlega 30.000 km. leið frá Tokyo til Chicago, Amsterdam, Seattle og svo aftur til Tokyo. Líklegt þykir að þetta verði síðasta hraðamet þessa nets. Vegna þess að til þess að nýtt met sé tekið gilt þarf það að vera 10 prósentum hraðara en fyrra met. Þyrfti það að vera á hraðanum 10 Gbps, sem eru fræðileg takmörk Internet2 netsins. Hinsvegar eru samtökin sem standa að Internet2 að skipuleggja byggingu á neti með hraðatakmörkin 100 Gbps. Með þeirri tíföldu stækkun myndi t.d. taka nokkrar sekúndur að senda hágæða útgáfu af bíómynd í stað hálfrar mínútu með Internet2. Internet2 netið er rekið í sameiningu af 200 bandarískum háskólum. Tilkynnt var um metið á vorfundi Internet2 samtakanna sem að lauk í dag í Arlington í Virginíu. Heimasíða Internet2
Tækni Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira