Sölu á LaSalle hafnað 7. maí 2007 13:02 LaSalle-bankinn í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
ABN Amro Holding NV, rekstrarfélag eins stærsta banka Hollands, hafnaði í dag yfirtökutilboði þriggja banka í Evrópu í LaSalle, banka í eigu ABN Amro í Bandaríkjunum. Tilboðið hljóðaði upp á 24,5 milljarða dali, jafnvirði 1.557 milljarða íslenskra króna. Í kauptilboði breska bankans Barclays á ABN Amro var skilyrði um sölu á LaSalle til Bank of America, sem bauð 21 milljarða dala, 1.335 milljarða króna, í starfsemina í vesturheimi. Ekki liggur fyrir hver framtíðin um baráttuna um ABN Amro verður en evrópski bankahópurinn, sem samanstendur af Royal Bank of Scotland, belgíska bankanum Fortis og hinum spænska Santander, bauð um helgina 96,4 milljarða dali, 6.163 milljarða íslenskra króna, fyrir allan bankann, þar með talið var LaSalle. Barclays bauð hins vegar 90 milljarða dali, jafnvirði 5.754 milljarða íslenskra króna, en gegn því að LaSalle yrði seldur. Baráttan um hollenska bankann hefur keyrt upp gengi bréfa í honum en það hefur hækkað um 47 prósent það sem af er ári og stendur nú í 35,90 evrum á hlut.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira