Kjörsókn ívið minni víðast hvar 12. maí 2007 14:34 MYND/GVA
Kosningar til Alþingis hafa gengið vel fyrir sig það sem af er. Kjörsókn hefur víðast verið heldur dræmari en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðvesturkjördæmi þar sem kjörsókn hefur verið töluvert meiri og á Akureyri hafa nokkuð fleiri greitt atkvæði en árið 2003. Í Reykjavík höfðu 22.192 kosið klukkan tvö. Kjörsókn í Reykjavík Norður var 24,09 prósent og í Reykjavík Suður var hún 26,84 prósent. Meðaltalið í Reykjavík var því 25,46 prósent, en fyrir fjórum árum höfðu 29,89 prósent kjósenda mætt á kjörstað klukkan tvö. Það var hins vegar óvenju góð þáttaka, og er kjörsóknin í dag svipað og í alþingiskosningunum þar á undan. Í stærsta kjördæminu, Suðvesturkjördæmi, höfðu 9703 kosið klukkan eitt eða 17,8 prósent þeirra sem eru á kjörskrá. Það eru ívið minni þáttaka en á sama tíma fyrir fjórum árum. Í Suðurkjördæmi er ekki búið að taka saman tölur um heildarkjörsókn en í hádeginu hafði kjörsókn verið allt frá níu prósentum í Vestmannaeyjum og allt að 24,30 prósentum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Karl Gauti Hjaltason, formaður kjörstjórnar segir að kosningarnar hafi gengið vel fyrir sig það sem af er og að kjörsókn sé svipuð og í síðustu kosningum. Í Norðvesturkjördæmi hefur kjörsókn víða verið betri en síðast. Þannig höfðu til að mynda 23.2 prósent kosið á Akranesi í Hádeginu og um 30 prósent í Grundarfirði. Ekki er búið að taka saman heildarkjörsókn í kjördæminu. Í Norðausturkjördæmi eru heldur ekki komnar heildartölur yfir kjörsókn en 18 prósent Akureyringa höfðu mætt á kjörstað klukkan eitt. Það er tveimur prósentum betri kjörsókn en í kosningunum 2003. Búist er við heildartölum klukkan fjögur.
Kosningar 2007 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira