Viðhaldið fært til bókar 14. maí 2007 21:00 Þóra Jónsdóttir og Þórdís B. Sigurþórsdóttir standa að gagnagrunninum Viðhaldsbókin mín. MYND/Gva
Viðhaldsbókin mín er gagnagrunnur á netinu þar sem hægt er að skrá allar framkvæmdir fasteigna. Upplýsingarnar fylgja síðan eigninni um ókomna tíð. „Hugmyndin vaknaði síðastliðið sumar þegar sonur minn ætlaði að kaupa íbúð. Sums staðar höfðu eigendur húsanna ekki hugmynd um ástandið á mikilvægum hlutum eins og þaki og skólpi. Þá datt mér í hug að hanna gagnagrunn þar sem húseigendur geta skráð allar framkvæmdir og halda utan um þessar upplýsingar," segir Þóra Jónsdóttir sem hannaði og rekur vefinn Viðhaldsbókin mín. Vefurinn er gagnagrunnur þar er hægt að skrá inn upplýsingar um framkvæmdir á fasteign notendum að kostnaðarlausu. Upplýsingarnar fylgja síðan eigninni um ókomna tíð. Þóra segir að vefurinn henti jafn fyrir húseigendur, húsfélög og fagmenn. Eftir að hugmyndin fæddist tók Þóra þátt í Brautargengis- námskeiði, sem er frumkvöðlanámskeið fyrir konur hjá Impru nýsköpunarmiðstöð. Á námskeiðinu þróaði hún hugmyndina og vann viðskiptaáætlun. Hugmyndin þótti gífurlega góð og að námskeiði loknu hlaut Þóra nýsköpunarstyrk fyrir Viðhaldsbókina. Þóra er sjálf eðlis- og tölvufræðingur og hefur unnið gagnagrunninn og síðuna að mestu sjálf. Nýlega fékk hún til liðs við sig Þórdísi B. Sigurþórsdóttur sem mun aðstoða Þóru við markaðsmál. Framundan er frekari þróun á vefnum. Til stendur að notendur geti hrósað þeim fagmönnum sem vinna verkið vel og einnig að fagmenn geti leitað að húseigendum sem ætla í framkvæmdir. Viðhaldsbókin mín er notendum að kostnaðarlausu en Þóra stefnir á samstarf við styrktaraðila til að geta þróað vefinn frekar. Viðhaldsbókin mín er á vefnum: www.v3.is
Tækni Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira