Þúsundir flýja flóttamannabúðir í Líbanon Jónas Haraldsson skrifar 23. maí 2007 07:07
Þúsundir hafa flúið flóttamannabúðir í norðurhluta Líbanon eftir þriggja daga átök herskárra múslima og stjórnarhermanna. Palestínskir flóttamenn í Nahr al-Bared búðunum sátu fastir á meðan bardögunum stóð. Í gær komst þó tímabundin ró á og nýttu margir sér tækifærið til þess að flýja, annað hvort inn í Trípólí eða aðrar flóttamannabúðir í nágrenninu. Sameinuðu þjóðirnar sendu bíla með mat og vatn inn í búðirnar en einn þeirra þurfti að snúa við eftir að sprengja sprakk í nágrenni hans. Ástandið er slæmt í búðunum. Ekkert rafmagn, enginn matur og ekkert vatn. Aukinheldur er engin sjúkraaðstaða í Nahr al-Bared en margir í þeim þurfa á aðstoð að halda eftir bardaga undanfarinna daga. Herskáir múslimar sem kalla sig Fatah al-Islam og stjórnarher Líbanon takast þarna á. Líbanon segir vígamennnina vera styrkta af Sýrlandi og hafa heitið því að uppræta starfsemi þeirra en þeir halda til í flóttamannabúðunum Nahr al-Bared. Átökin eru þau hörðustu sem hafa átt sér stað í Líbanon síðan borgarastyrjöld lauk þar í landi fyrir 17 árum síðan.
Erlent Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Sjá meira