Tólf dæmdir fyrir morð á serbneskum forsætisráðherra Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 23. maí 2007 10:53
Serbneskur dómstóll hefur dæmt 12 menn fyrir morðið á hinum vesturlandasinnaða forsætisráðherra Zoran Djindjic í Belgrad árið 2003. Allir hinna dæmdu höfðu neitað ákærunum, en þeir eru meðal annars meðlimir öryggislögreglunnar og eru taldir tengjast mafíuforsprökkum. Tveir fyrrum lögreglumenn Milorad Ulemek og Zvezdan Jovanovic fengu 40 ára fangelsisdóma. Þeir eru sagðir vera forsprakkar samsærisins. Ákæruvaldið hélt því fram að Djindjic hafi verið drepinn til að koma í veg fyrir umbætur, meðal annars á grunuðum stríðsglæpamönnum. Þetta var í fyrsta sinn sem mál var dæmt í sérstökum rétti í Belgrad fyrir skipulagða glæpi. Sumir hinna 10 höfðu þjónað sem hermenn í átökunum í Bosníu, Króatíu og Kosovo. Talað er um málið sem réttarhald aldarinnar í Serbíu. Ýmis vandkvæði komu þó upp í ferli þess. Tvö vitni voru myrt, einn dómari sagði upp störfum og annar fékk morðhótanir. Djindjic forsætisráðherra var að stíga úr bíl sínum fyrir utan byggingu ríkisstjórnarinnar í Belgrad þegar hann var myrtur af leyniskyttu 12. mars 2003.
Erlent Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Fleiri fréttir Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Sjá meira