Velta í dagvöruverslun eykst um 8,8 prósent 8. júní 2007 09:58 Keypt í matinn. Rannsóknasetur verslunarinnar segir fátt benda til að draga sé úr einkaneyslu.
Velta í dagvöruverslun jókst um 8,8 prósent í maí á föstu verðlagi samanborið við sama tíma í fyrra. Á breytilegu verðlagi nam hækkunin hins vegar 13,2 prósentum, samkvæmt smásöluvísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst. Sambærileg aukning varð í sölu áfengis milli mánaðanna apríl og maí, en hún nam 8,6 prósentum á föstu verðlagi. Rannsóknarsetrið segir enn sem fyrr mun meiri sveiflur í sölu fata- og skóverslunar milli mánaða en í dagvöruverslun. Velta í fataverslun var 16,6 prósentum meiri í maí en í mánuðinum á undan og í skóverslun var aukningin 30,9 prósent á milli mánaða. Ástæðan er að einhverju leyti sú að fleiri verslunardagar voru í maí en í apríl auk þess sem vorið er sá tími sem landsmenn endurnýja föt- og skó. Þá bendir Rannsóknasetrið á að í hagspám hafi verið gert ráð fyrir að dragi úr vexti einkaneyslu. Þess sjáist ekki merki ef litið er til veltuaukningar í smásöluverslun sem nemur sjö prósentum frá áramótum. Ekki virðist heldur hafa dregið úr einkaneyslu þegar litið er til greiðslukortaveltu, sem var 11 prósentum meiri á fyrstu fjóra mánuðum ársins samanborið við síðasta ár. Bent er á að athyglisvert sé að nýskráning bíla jókst um 66 prósent á milli mánaðanna apríl og maí. Þar sem kaupmáttur launa haldi áfram að aukast samkvæmt mælingu Hagstofunnar megi ætla að sölutölur í verslun haldi áfram að stíga á næstunni, að sögn Rannsóknasetur verslunarinnar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Innflytjendur krefjast skýrari íslenskustefnu Kynningar Alhliða lausnir í upplýsingatækni Kynningar Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Vísindamenn í fiskvinnslu þróa heilsuvörur úr roði og beinum Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Fleiri fréttir Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Sjá meira