Vill Norrænt tæknisetur utan Evrópu 11. júní 2007 15:41 Esko Aho, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands.
Norðurlöndin ættu að íhuga það að setja á stofn sameiginleg tæknisetur utan Evrópu. Esko Aho fyrrum forsætisráðherra Finnlands segir þetta í grein sem hann skrifar í dagblaðið Helsinki Sanomat. "Það sem einkennir Norðurlöndin er að þau eru opin og þau eru háð hinu alþjóðlega hagkerfi. Þess vegna ættu Finnland, Svíþjóð, Danmörk, Noregur og Ísland að íhuga það alvarlega að sameina krafta sína, allavega í Indlandi, Afríku eða Suður-Ameríku", segir Aho, en hann er formaður Sitra, þjóðhátíðarsjóðs Finnlands. Aho leggur á það áherslu að Norðurlönd hafi verið í fararbroddi í Evrópu meðal annars hvað varðar auknar fjárveitingar til rannsókna og þróunar. En það eru enn mörg tækifæri ónýtt á tæknisviðinu. "Sérstakleg innan opinbera geirans. Hægt er að bæta árangur og gæði þjónustu hins opinbera verulega með hjálp upplýsingatækninnar", segir hann. Það sem háir norrænu samstarfi, að mati Aho, er oft það sama og háir Evrópusamstarfi. Leitað er með logandi ljósi að nýjum sviðum til að vinna á, í stað þess að einbeita sér að samstarfi þar sem veruleg þörf er á. Norðurlöndin ættu til að mynda að leggja áherslu á vísindi, tækni og nýsköpun. "Það er mjög gott að Norræna ráðherranefndin skuli leggja áherslu á þessi svið. Við verðum að vona að ríkisstjórnirnar hafi einnig þá framsýni sem nauðsynleg er til að koma með raunhæfar lausnir", segir Aho.
Erlent Mest lesið „Alla mína ævi var ég að reyna að verja hann fyrir kynþáttafordómum“ Innlent Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Erlent Lítið hægt að gera við kínverska vagna Strætó annað en að stöðva þá Innlent Skulda annarri konu fleiri milljónir vegna launamismunar Innlent Björgunarsveitarkona miður sín: Fékk ítrekaðar athugasemdir um húðlit Neyðarkallsins Innlent Ekki lengur gert ráð fyrir að fangaverðir starfi í brottfararstöð Innlent „Mig langar til að tala eins og Íslendingur – nákvæmlega eins og Íslendingur“ Innlent Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Erlent Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Erlent Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Erlent Fleiri fréttir Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Belgar kalla saman þjóðaröryggisráð vegna drónaflugs við flugvelli Tala látinna hækkar á Filippseyjum Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Tortryggnir í garð tolla Trumps Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Tugir látnir eftir fellibyl á Filippseyjum „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Féll til jarðar rétt eftir flugtak Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Náðu myndum af háhyrningum að velta hvítháfum og éta úr þeim lifrina Fer fram og til baka með SNAP Dick Cheney, einn arkítekta Íraksstríðsins, er látinn Sjá meira