Lækkanir á kínverskum hlutabréfamarkaði 25. júní 2007 10:08 Kínverska kauphöllin í Sjanghæ. Mynd/AFP
Gengi CSI-vísitölunnar lækkaði um þrjú prósent í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína í dag eftir að seðlabanki landsins sagði nauðsynlegt að hækka stýrivexti til að draga úr verðbólgu, spennu í hagkerfinu og magni peninga í umferð. Gengi vísitölunnar hefur þrefaldast síðastliðið eitt og hálft árið, þar af tvöfaldast frá áramótum. Mikil eftirspurn hefur verið eftir hlutabréfum í Kína og hafa jafnt háskólastúdentar sem eldri borgarar varið sparifé sínu fremur til hlutabréfakaupa en að ávaxta það á hefðbundnum sparifjárreikningi. Varað hefur verið við bólumyndun á hlutabréfamarkaði vegna þessa, sem geti sprungið með alvarlegum afleiðingum. Kínversk stjórnvöld hafa af þessum sökum gripið til ýmissa ráða til að draga úr eftirspurn á hlutabréfamarkaði, meðal annars með hækkun stimpilgjalda. Vísitalan stendur nú í 3.929 stigum eftir að hafa verið í methæðum um nokkurt skeið.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira