Hráolía lækkar í verði 3. júlí 2007 10:47 Olíumiðlarar að störfum í New York Mercantile Exchange í New York. MYND/AFP
Verð á hráolíu lækkaði í dag eftir að hafa náð tíu mánaða hámarki seint í gær. Fjölmargir olíumiðlarar höfðu gert framvirka samninga í von um að verð héldi áfram að hækka og ýttu þar með undir hækkun á olíuverði. Verðið hafði hækkað um fimm prósent undanfarna fjóra daga vegna slíkra samninga. Markaðurinn stóð hins vegar ekki undir hækkununum og því lækkaði verðið á ný í morgun. Sérfræðingar sögðu að verðið hefði einfaldlega hækkað of mikið of hratt. Verð á hráolíu til afhendingar í ágúst féll um 31 sent, eða 0,4 prósent, niður í 70,78 dollara. Í Lundúnum klukkan tíu í morgun seldust framvirkir samningar á 70,90 dollara. Skýrsla orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna gefur til kynna að birgðir í Bandaríkjunum hafi aukist um hálfa milljón tunna. Notkun á hreinsistöðvum hefur aukist og talið er að hún nái 90% í fyrsta sinn í fimm vikur.
Erlent Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira