Gríðarlegur tekjumunur í Evrópukeppnunum 10. júlí 2007 21:15 Milan vann sér inn 3,3 milljarða króna í tekjur fyrir sigurinn í Meistaradeildinni AFP
Evrópumeistarar AC Milan fengu mestar tekjur fyrir þáttöku sína í Meistaradeildinni á síðasta tímabili en peningalistinn var tilkynntur af Knattspyrnusambandi Evrópu í dag. Milan bar sigurorð af Liverpool í úrslitaleik í vor og halaði inn tæpar 40 milljónir evra með góðu gengi sínu í keppninni. Chelsea komst í undanúrslitin í keppninni en félagið vann sér inn 34,66 milljónir evra eða 2,9 milljarða og Liverpool vann sér inn þriðju hæstu summuna - rúmar 32 milljónir evra eða um 2,7 milljarða króna. Sevilla sigraði í Evrópukeppni félagsliða, en þar eru talsvert lægri peningaupphæðir í umferð en í Meistaradeildinni og uppskeran því aðeins 6,25 milljónir evra. Espanyol lenti í öðru sæti í þeirri keppni og fékk 5,3 milljónir evra fyrir - en inni í þessu eru reyndar ekki tekjur liðanna af heimaleikjum. Eins og sést á listanum eru tekjur liðanna í Evrópukeppnunum ekki aðeins tengdar árangri, heldur er þar líka tekið tillit til þess hve stór markaður er í kring um félögin. Einnig er bilið milli Meistaradeildar og Evrópukeppni félagsliða gríðarlegt og dæmi um það er að lið Levski Sofia frá Búlgaríu sem tapaði öllum sex leikjum sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar - halaði inn meira en milljón evrum meira en Tottenham, sem vann alla leiki sína í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða og tapaði í fjórðungsúrslitum keppninnar.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Sjá meira