Gleymdu börnunum vegna tölvuleikjafíknar 15. júlí 2007 13:02
Ungt par sem var handtekið fyrir að vanrækja börnin sín tvö sagði tölvuleiki og internetið vera ástæðurnar fyrir vanrækslunni. Börnin, sem eru 22 mánaða strákur og 11 mánaða stúlka, voru alvarlega vannærð og nær dauða en lífi þegar þau voru færð á sjúkrahús. Michael Straw, 25 ára, og Iana Straw, 23 ára, játuðu á sig vanrækslu á föstudaginn síðastliðinn. Þau eru frá Reno í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Bæði eiga þau yfir höfði sér allt að 12 ára fangelsisdóm. Saksóknari sagði að fólkið hefði einfaldlega tapað sér í netútgáfu tölvuleiksins „Dungeons & Dragons" og gleymt að hugsa um börnin sín. Starfsfólk á sjúkrahúsinu varð að klippa hárið af 11 mánaða stúlkunni þar sem það var útatað í kattahlandi. Þá hafði hún sýkingu í munni, of þurra húð og þjáðist af alvarlegum vökvaskorti. Hungur hafði leikið strákinn grátt auk þess sem hann hafði kynfærasýkingu. Þá höfðu vöðvar hans ekki náð að þroskast almennilega vegna vannæringar og átti hann því erfitt með gang. Bæði börnin dafna nú vel hjá fósturforeldrum. Sérfræðingar hafa ekki enn viljað samþykkja að það að vera háður tölvuleikjum sé sálrænt vandamál, eins og alkóhólismi eða eiturlyfjafíkn.
Erlent Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Sjá meira