Starfsfólk BBC á námskeið til að læra að segja satt Óli Tynes skrifar 25. júlí 2007 10:23
Yfir 16 þúsund starfsmenn breska ríkissjónvarpsins BBC hafa verið sendir á námskeið þar sem þeir eiga að læra að segja satt. Þetta var ákveðið eftir að upplýst var um stórfelldar falsanir í útvarps- og sjónvarpsþáttum þar sem fé var safnað. Þáttastjórnendur fölsuðu niðurstöður meðal annars með því að hafa barn í útvarpssal sem var látið koma með rétt svar þegar þeir sem hringdu inn gátu ekki rétt. Þrír þáttastjórnendur hafa þegar verið reknir vegna þessa. Tveir yfirmanna BBC mættu fyrir breska þingnefnd í gær þar sem þeir hlutu slæma útreið. Þess var meðal annars krafist að þeir breyttu myndröð í kynningu á sjónvarpsþætti, þar sem lítur út eins og Elísabet drottning hafi rokið burt í fússi eftir orðaskipti við ljósmyndara. Breski íhaldsþingmaðurinn Philip Davies var ekki hrifinn af námskeiðinu fyrir starfsfólk BBC. Hann spurði hvort það væri rétt meðferð á áskriftargjöldum að setja þau í námskeið til að kenna fólki að ljúga ekki. Hvort ekki væri rétt að endurskoða frekar ráðningarferli stofnunarinnar.
Erlent Mest lesið „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Erlent Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Erlent Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Innlent Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Erlent Bjóða Frosta að ræða „villuljós“ í Háskóla Íslands Innlent „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Erlent Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sjá meira