Umfangsmikil sjóræningjastarfsemi leyst upp 25. júlí 2007 14:19
Kínverska lögreglan og bandaríska alríkislögreglan, FBI, hafa leyst upp tvo umfangsmikla kínverska glæpahringi sem ábyrgir eru fyrir fölsun og dreifingu á allt að tveimur milljörðum eintaka af tölvuhugbúnaði. Hringirnir störfuðu í Shanghai og Shenzhen í Kína en dreifðu framleiðslu sinni víða um heim. 25 viðriðnir voru handteknir. Þá var lagt hald á falsaðan hugbúnað sem metinn er á 30 milljarða íslenskra króna. Rannsókn á starfseminni hefur staðið yfir í tvö ár. Með gögnum frá FBI, kínversku öryggisskrifstofunni PSB og tölvurisanum Microsoft tókst að lokum að rekja uppsprettu varningsins. Aðallega er um að ræða falsanir á tölvuhugbúnaði frá Microsoft og Symantec. Að sögn FBI endaði stærsti hluti framleiðslu hringjanna tveggja hjá neytendum í Bandaríkjunum, en einnig í Kanada, Bretlandi, Ástralíu og Japan. Sjóræningjastarfsemi, eins og svonalagaðir glæpir eru gjarnan kallaðir, er mjög umfangsmikil í Asíu. Talið er að 82 prósent þess hugbúnaðar sem er í umferð í Asíu sé falsaður.
Tækni Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira