Mótmælabúðir reistar við Heathrow flugvöll Óli Tynes skrifar 12. ágúst 2007 14:36
Búist er við miklum truflunum á Heathrow flugvelli í Lundúnum frá og með þriðjudegi, vegna umhverfisverndarsinna sem eru að reisa mótmælabúðir við flugvöllinn. Mótmælendurnir eru frá margvíslegum samtökum sem hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum og vilja mótmæla nýrri flugbraut sem á að leggja á flugvellinum. Mótmælin eiga að standa í eina viku.Um ein og hálf milljón farþega fer um Heathrow í viku hverri og það eru því ansi margir sem geta orðið fyrir töfum. Breska flugvallastjórnin er ekki sérlega hrifin af tiltækinu. Mark Bullock, framkvæmdastjóri Heathrow segir að stór hluti farþeganna séu saklausar fjölskyldur sem séu að fara í sumarfrí.Hann sagði að Breska flugvallastjórnin virði rétt manna til þess að mótmæla. Flugfarþegar eigi hinsvegar einnig sinn rétt til að ferðast óhindrað. Gemma Davis einn af talsmönnum mótmælenda viðurkenndi að farþegar myndu verða fyrir töfum, þótt það væri ekki ætlan þeirra.Loftslagsbreytingarnar væru hinsvegar slíkt stórmál að það yrði að mótmæla. Framtíð mannkynsins væri í húfi.
Erlent Mest lesið Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út Innlent „Ástandið er að versna“ Erlent „Þetta er salami-leiðin“ Innlent Fækkar herforingjum um fimmtung Erlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Erlent Gunnlaugur Claessen er látinn Innlent Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Erlent Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Innlent Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Íbúar Nuuk orðnir tuttugu þúsund Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Umsetin af krókódílum í 36 klukkutíma eftir nauðlendingu Birti mynd af sér í páfaskrúða Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Sjá meira