Segja CIA breyta færslum í Wikipedia Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 16. ágúst 2007 07:57
Framleiðendur hugbúnaðar sem á að geta komið upp um hverjir það eru sem breyta síðum á Wikipediu alfræðiorðabókinni, segja að starfsmenn CIA hafi breytt síðu sem fjallar um Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans. Hver sem er getur breytt færslum í Wikipedia alfræðiorðabókinni. Wikipedia Scanner forritið fer yfir lista allra breytinga sem gerðar eru og tengir þær við IP tölur þeirra sem þær gera. Forritið er helst notað til að leiðrétta stafsetningar- og staðreyndavillur. Framleiðendur þess segjast hafa komist að því að starfsmaður leyniþjónustunnar hafi bætt upphrópuninni ,,Waaaaah" fyrir framan grein sem fjallaði um Ahmadinejad. Aðrar breytingar hafi verið settlegri, til dæmis breytingar á færslu um Porter Gross, fyrrverandi yfirmann CIA. Talsmaður CIA vildi aðspurður ekki staðfesta að breytingarnar hafi verið gerðar í tölvum stofnunarinnar. Stofnunin situr ekki ein í súpunni. Forritið sýnir til dæmis að færslu um Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein hafi verið breytt úr tölvu í Vatíkaninu. Þá var tölva í höfuðstöðvum Demókrataflokksins notuð til að breyta færslu um hægrisinnaða þáttastjórnandann Rush Limbaugh. Forsvarsmenn Wikipediu gleðast yfir því gagnsæi sem þeir segja þetta benda til.
Tækni Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira