Aukið tap hjá Atlantic Petroleum 24. ágúst 2007 12:33 Wilhelm Petersen, forstjóra Atlantic Petroleum. Hann er ánægður með afkomu félagsins þrátt fyrir talsvert meira tap á fyrri helmingi árs en í fyrra. Mynd/Valli
Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum, sem skráð er á markað í Kauphöllinni, tapaði 39,3 milljónum danskra króna, um 470,5 milljónum íslenskra króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er talsvert meira tap en á sama tíma í fyrra þegar fyrirtækið tapaði jafnvirði 76 milljónum króna. Mestur hluti tapsins kom til á öðrum fjórðungi ársins. Tapið á öðrum ársfjórðungi nam 35,2 milljónum danskra króna. Á sama tíma fyrir ári nam það hins vegar rétt rúmum fjórum milljónum danskra króna. Á árshlutauppgjöri Atlantic Petroleum kemur fram að starfsemi fyrirtækisins sé á áætlun á Chestnut- og Ettrick-olíuleitarsvæðunum en reiknað er með að olíuvinnsla hefjist á fyrrnefnda svæðinu seint á þessu ári en á hinu svæðinu á næsta ári. Eignir félagsins námu 346,7 milljónum danskra króna í júnílok en þær námu 361,4 milljónum króna í lok síðasta árs. Haft er eftir Wilhelm Petersen, forstjóra Atlantic Petroleum, í tilkynningu frá félaginu, að forsvarsmenn þess séu ánægðir með afkomuna í ljósi aukinnar olíuleitar fyrirtækisins. Árshlutauppgjör Atlantic Petroleum
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Viðskipti innlent Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Viðskipti innlent Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ Atvinnulíf Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Viðskipti innlent Þórdís til dómsmálaráðuneytisins Viðskipti innlent Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Viðskipti innlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Neytendur Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Viðskipti erlent „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Um þrjátíu prósent hafa miklar áhyggjur af áhrifum tolla á Ísland Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Sjá meira