Sjáldséð pöndufæðing í Austurríki Valur Hrafn Einarsson skrifar 24. ágúst 2007 15:45 Myndin úr öryggismyndavél dýragarðsins. Yang Yang sést hér með nýfæddan húninn í munninum. MYND/AP
Fyrsta pandan í Evrópu sem var getin með eðlilegum hætti í dýragarði fæddist í Austurríki. Flestar risapöndur sem fæðast í dýragörðum eru getnar með tæknifrjóvgun, en stjórnandi Schoenbrunn dýragarðsins í Vínarborg vildi leyfa móðir náttúru að vinna sitt verk. Kvenkyns risapöndur eru aðeins frjóar í þrjá til fjóra daga á ári. Húnninn sem er 10cm langur og 100gr á þyngd, var getinn af hinum sjö ára gömlu risapöndum dýragarðsins, kvendýrinu Yang Yang og karldýrinu Long Hui. Dýragarðurinn í Vín fékk pönduparið að láni frá Kína árið 2003. Starfsmenn dýragarðsins höfðu næstum því gefið upp alla von um að Yang Yang yrði ólétt. Læknir við dýragarðinn sagði að ómskoðun sem Yang Yang fór í 6. ágúst hafi ekki gefið til kynna að hún væri það. Húnninn uppgötvaðist snemma á fimmtudaginn þegar að óeðlileg hljóð bárust frá pöndusvæði dýragarðsins. Öryggismyndavélar staðfestu svo að húnninn væri fæddur. Kyn hans fæst ekki staðfest fyrr en eftir nokkrar vikur. Árið 1984 byrjuðu stjórnvöld í Kína að lána erlendum dýragörðum risapöndur gegn greiðslu. Risapöndur eru í útrýmingarhættu eftir þær töpuðu um helmingi af bambusskógunum sem þær halda til villtar á árunum 1974-1988. Aðeins er talið að um 1600 risapöndur lifi villtar í náttúrunni. Svo eru um 160 pöndur í dýragörðum víðsvegar um heiminn.Fréttavefur BBC greindi frá.
Vísindi Mest lesið Vilja að konur uppgötvi sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent Rafmagn er farið af í miðbæ Reykjavíkur Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Innlent „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Innlent Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Innlent