Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina 29. ágúst 2007 16:17
Nokkrir af okkar bestu kylfingum hafa verið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku og margir hafa reynt að komast inn á evrópsku mótaröðina og hafa einungis tveir einstaklingar komist þar inn með fullan þátttökurétt en það var Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir. Hvað þarf til að taka þátt í þessum mótum og hvernig er hægt að komast inn á evrópsku mótaröðina. Hjá körlunum þarf að vera atvinnumaður í golfi eða hafa forgjöf fyrir neðan 0 til að vera gjaldgengur í úrtökumótin. 1. stig fer fram á sex mismunandi völlum og eru um 130 keppendur á hverjum stað. 25-30 leikmenn komast áfram á hverjum velli og geta þeir þá tekið þátt á öðru stigi. 2. stigið fer fram á þremur völlum og eru þar keppendur sem náðu að komast í gegnum fyrsta stigið og keppendur sem hafa sloppið við fyrsta stigið. Það geta verið keppendur á Áskorendamótaröðinni eða kylfingar sem komust á 3. stig árið áður. 25-30 kylfingar komast í gegnum 2. stigið og verða því löglegir á 3. stigið ásamt leikmönnum sem hafa unnið sér rétt á því stigi áður. Það geta verið leikmenn sem eru á evrópsku mótaröðinni sem ekki ná 115. sæti á mótaröðinni. 3. stigið er sex hringir en 90 efstu komast áfram eftir fjóra hringi og svo eru um 30 efstu sem fá fullan þátttökurétt á evrópsku mótaröðinni. Hjá konunum er þetta aðeins öðruvísi. Þar fer fram forkeppni þar sem spilaðar eru 54 holur og ákveðinn fjöldi kemst áfram. Þessi fjöldi verður ekki ákveðinn fyrr en eftir að skráningu er lokið. Fjöldinn sem kemst áfram fer eftir því hve margir skrá sig í lokaúrtökumótið en þar spila 90 spilarar. Þeir sem sleppa við forkeppnina eru núverandi meðlimir LET (ladies european tour) sem ekki hafa náð lágmarks mörkum eða fyrrverandi sigurvegarar á LET. Lokaúrtökumótið er svo 72 holur þar sem 25 efstu fá fullan þáttökurétt á LET. Kylfingur.is
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira