Óróleikinn fjármálafyrirtækjum að kenna 13. september 2007 13:29 Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sem segir að fasteignalánafyrirtæki verði að líta í eigin barm enda hafi þau veitt einstaklingum með litla greiðslugetu há lán til fasteignakaupa. Mynd/AFP
Fasteignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum geta kennt sér sjálf um skellinn sem þau hafa orðið fyrir síðustu vikurnar. Þetta segir Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Hann segir fyrirtækin hafa sýnt óábyrgar lánveitingar og telur að vegna viðskipta þeirra muni það taka undirmálslánamarkaðinn allt upp undir tvö ár að jafna sig. Til undirmálslánamarkaðarins teljast þeir viðskiptavinir fasteignalánafyrirtækja sem hafa litla greiðslugetu og slæma greiðslusögu og fá alla jafna ekki hefðbundin fasteignalán í Bandaríkjunum. Undirmálslánin bera iðulega hærri vexti en venjuleg fasteignalán og hafa lántakar átt í erfiðleikum að greiða af þeim. Fjöldi fjármálafyrirtækja víða um heim, sem hafa fjárfest í lánasöfnum fasteignalánafyrirtækja vestanhafs, hefur lent í erfiðleikum vegna mikilla vanskila þessara einstaklinga í Bandaríkjunum. Paulson segir þetta fyrirtækjunum sjálfum að kenna og verði þau að horfa í eigin barm. „Ég tel að það sé ekki hlutverk yfirvalda og eftirlitsaðila að verja þau gegn tapi," segir hann.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira