Vöxtur í smásöluverslun undir spám 14. september 2007 12:49 Auknar líkur eru taldar á því að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti í næstu viku eftir að smásöluverslun jókst minna en vænst var í ágúst. Mynd/AFP
Smásöluverslun í Bandaríkjunum jókst um 0,3 prósent á milli mánaða í ágúst, samkvæmt nýbirtum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Til samanburðar nemur aukningin 0,5 prósentum í júlí. Þetta er nokkru undir væntingum greinenda, sem telja að samdráttur á fasteignamarkaði vestanhafs hafi snert meira við einkaneyslu en talið hefur verið. Fréttaveita Bloomberg segir lægra fasteignaverð í kjölfar samdráttar á fasteignamarkaði vestra, hærri vaxtakostnaður og færri nýráðningar en gert var ráð fyrir hafa skilað sér í minni einkaneyslu nú en áður. Einkaneyslutölur eru stór liður í hagtölum og megi því gera ráð fyrir að hægi á hagvexti í kjölfarið. Bloomberg segir þetta gefa seðlabanka Bandaríkjanna enn frekar tilefni til að lækka stýrivexti á vaxtaákvörðunarfundi bankans á þriðjudag. Ekki liggur fyrir hve mikil lækkunin gæti orðið en greinendur telja að í ljósi óróleika á fjármálamörkuðum geti stýrivextir farið niður í Bandaríkjunum um allt að 50 punkta.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira