Hagnaður Deutsche Bank jókst um 31 prósent 31. október 2007 09:15 Josef Ackermann, forstjóri Deutsche Bank. Hagnaður bankans jókst um 31 prósent þrátt fyrir skell á bandarískum fasteignalánamarkaði. Mynd/AFP
Hagnaður Deutsche Bank nam 1,62 milljörðum evra, jafnvirði tæplega 141 milljarðs króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 1,24 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er 31 prósents hækkun á milli ára og nokkuð yfir væntingum. Inn í afkomutölurnar koma endurgreiddir skattar og hagnaður af sölu eigna sem vegur upp á móti fyrsta tapi af fjárfestingum bankans í heil fimm ár. Bankinn varð að afskrifa 2,16 milljarða evra á tímabilinu vegna tapaðra útlána á bandarískum fasteignalánamarkaði. Það er í takt við skarðið sem lausafjárkrísan hjó í afkomu fjölmargra fjármálafyrirtækja á fjórðungnum. Hagnaður á hlut nam 3,31 evru samanborið við 2,43 evrur á sama tíma í fyrra. Fréttaveita Bloomberg hefur eftir Josef Ackermann, forstjóra Deutsche Bank, að útlit sé fyrir að bankinn hafa yfirstigið helstu hindranir og spáir hann því að yfirstandandi fjórðungur verði með hefðbundnu sniði. Þá sé reiknað með að bankinn nái áætlunum sínum á næsta ári.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira