Seðlabanki Kanada lækkar stýrivexti 5. desember 2007 09:26 Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands. Fjármálasérfræðingar segja auknar líkur á að bankinn feti í fótspor kanadíska seðlabankans á morgun og lækki stýrivexti. Mynd/AFP
Kanadíski seðlabankinn ákvað í gær að lækka stýrivexti um 25 punkta í 4,25 prósent vegna óvissuástands í efnahagslífinu. Þetta er fyrsta stýrivaxtalækkun bankans í fjögur og hálft ár. Í rökstuðningi bankastjórnarinnar fyrir lækkuninni segir að gert sé ráð fyrir því að óróleiki á fjármálamörkuðum, sem rekja megi til vanskila á svokölluðum undirmálslánum í Bandaríkjunum og fjármálakreppu hjá bönkum og fjármálafyrirtækjum, muni vara til óákveðins tíma. Þá segir ennfremur að horfur séu á samdrætti í einkaneyslu í Bandaríkjunum og megi reikna með hægari innflutningi, ekki síst frá Kanada til Bandaríkjanna. Breska ríkisútvarpið hefur eftir fjármálasérfræðingum að ákvörðun bankastjórnarinnar hafi komið svo á óvart að það auki líkurnar á að Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, lækki stýrivexti sína á morgun í stað þess að halda þeim óbreyttum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira