Heiðar og Eygló í forystu í Eyjum 25. júlí 2008 19:25 Heiðar Davíð Bragason Mynd/Stefán
Heiðar Davíð Bragason og Eygló Myrra Óskarsdóttir hafa forystu þegar Íslandsmótið í höggleik er hálfnað í Vestmannaeyjum. Heiðar Davíð Bragason GR leiðir keppnina í karlaflokki, en hann lék hringinn í dag á 67 höggum, eða 3 höggum undir pari. Hann lék á 69 höggum í gær og því samtals á 136 höggum 4 höggum undir pari.Staðan hjá körlunum eftir 36 holur leiknar: Eygló Myrra Óskarsdóttir leiðir enn í kvennaflokki en hún spilaði á 79 höggum í dag . Tinna Jóhannsdóttir úr GK lék á 77 höggum í dag hún hefur náð að saxa verulega á forskot Eyglóar Myrru Óskarsdóttur sem nú leiðir með einu höggi. Á sama skori og Tinna eru þær Nína Björk Geirsdóttir GKJ og Helena Árnadóttir GR allar á 14 yfir pari. Staðan í kvennaflokki: 1. Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 153 2. Tinna Jóhannsdóttir GK 154 3. Nína Björk Geirsdóttir GKJ 154 4. Helena Árnadóttir GR 154 5. Ásta Birna Magnúsdóttir GK 155 6. Ragnhildur Sigurðardóttir GR 158 7. Ragna Björk Ólafsdóttir GK 159 8. Þórdís Geirsdóttir GK 160 9. Valdís Þóra Jónsdóttir GL 162 10. Andrea Ásgrímsdóttir GA 162 11. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 165 12. Hanna Lilja Sigurðardóttir GR 166 13. Guðrún Pétursdóttir GR 167 14. Heiða Guðnadóttir GS 170 15. Ingunn Gunnarsdóttir GKG 179 Að loknum leik í dag verður niðurskurður í karlafokki þannig að þeir sem hafa 72 keppendur með lægsta skor halda áfram keppni. Ef keppendur eru jafnir í 72. sæti skulu þeir báðir/allir halda áfram. Þó skulu leikmenn ætíð fá að halda áfram keppni séu þeir 10 höggum eða minna á eftir þeim keppanda sem er í 1. sæti. Í kvennaflokki er fækkað með sama hætti í 18 keppendur eftir 36 holu leik þess gerist þó ekki þörf að þessu sinni því keppendur í kvennaflokki eru 16. Beinar sjónvarpsútsendingar á Stöð 2 Sport verða frá mótinu frá kl 15:00 laugardag og sunnudag eins og undanfarin ár. Útsendingin eru mjög viðamikil en reiknað má með að um 60 manns vinni að útsendingunum, við upptökur, upplýsingastreymi og fleira. Golf.is mun áfram birta skor á þriggja holu fresti þangað til yfir líkur og Íslandsmeistarar í höggleik 2008 verða krýndir um kl 18:00 á sunnudaginn.
Golf Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira