Vísitölur enduðu beggja vegna núllsins 5. september 2008 20:40
Helstu hlutabréfavísitölur Bandaríkjanna enduðu beggja vegna núllsins í dag og batt þar með enda á fjögurra daga samfellt lækkunarferli á þarlendum fjármálamörkuðum. Gengi hlutabréfa lækkaði verulega í gær eftir birtingu fregna um að hugsanlega hafi atvinnuleysi aukist mikið auk þess sem vísbendingar komu fram um breytt neyslumynstur. Benti það til að neytendur væru tregir en áður til að taka upp veskið nema fyrir vörur í ódýrari kantinum og hugsi sig almennt tvisvar um. Þar sem bandarískt hagkerfi er mjög neysluknúið getur slík þróun, nái hún fram að ganga, dregið mjög úr hagvexti í Bandaríkjunum. Þróun mála á bandarískum hlutabréfamarkaði smitaði svo út frá sér á evrópska og asíska hlutabréfamarkaði í dag. Dagurinn byrjaði engu að síður vel því atvinnuleysi mældist 6,1 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, sem er umfram væntingar. Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í kjölfarið en jafnaði sig þegar á leið. Associated Press-fréttastofan bendir á að fjárfestar hafi séð tækifæri í lækkunarferli síðustu daga og fest kaup á hlutabréfum banka, fjármála- og neytendafyrirtækja sem hafi verið í lækkað mikið undanfarið. Það skýri þróunina í dag.Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,29 prósent á sama tíma og Nasdaq-vísitalan lækkaði um 0,14.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira