Gunnar Heiðar: Sáttur við nýju peyjana Elvar Geir Magnússon skrifar 19. ágúst 2008 17:06 Gunnar Heiðar í landsleik.
Íslenska landsliðið mætir Aserbaídsjan í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á morgun. Leikurinn er lokaundirbúningur fyrir leik gegn Noregi í undankeppni HM sem verður þann 6. september. „Mér líst mjög vel á þennan leik og er fullur tilhlökkunar. Andinn í hópnum er mjög fínn," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sóknarmaður Íslands, í samtali við Vísi í dag. Gunnar sagðist nánast ekker vita um mótherja morgundagsins. „Ég hef eiginlega ekki hugmynd! En þetta er nú fyrrum Sovétríki svo maður giskar á að þeir séu góðir að halda boltanum og séu með fína tækni. Við vonumst bara eftir góðum leik." Ákveðin kynslóðaskipti hafa verið í íslenska landsliðshópnum en ekki er langt síðan Gunnar Heiðar var í sömu sporum og nýliðarnir í dag. „Maður tekur eftir því með hverjum hópnum sem er valinn að maður er að eldast. Það koma kynslóðaskipti hvar sem er og ég er mjög sáttur við þessa peyja sem eru að koma inn. Þeir eiga framtíðina fyrir sér," sagði Gunnar. „Það styttist í alvöruna og við mætum Noregi í fyrsta leik í undankeppninni. Þá mæti ég á minn gamla heimavöll og það verður ekkert nema snilld."
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira