Mesta fall í Bandaríkjunum í 21 ár 29. september 2008 20:00 Miðlari með tárin í augun á Wall Street. Mynd/AP
Gengi hlutabréfa féll verulega í Bandaríkjunum í dag eftir að Bandaríkjaþings felldi tillögur stjórnvalda til að setja á laggirnar sjóð sem kaupi upp næsta verðlausar eignir þarlendra fjármálafyrirtækja sem tengjast bandarískum fasteignalánum. Fjárfestar urðu uggandi í kjölfarið og settu í sölugírinn þar sem þeir óttast að fjármálamarkaðir, sem ekki hafi verið burðugir síðustu vikurnar, muni versna enn frekar. Mikil vonbrigði voru með niðurstöðuna á Bandaríkjaþingi, að sögn bandaríska fjölmiðla. Gengi hlutabréfa í fjármálafyrirtækjum féll mest. Þar á meðal féll gengi bréfa í Goldman Sachs um fimmtán prósent. Aðrir bankar voru á svipuðu reki. Dow Jones-hlutabréfavísitalan féll um 6,98 prósent og Nasdaq-vísitalan um 9,14 prósent. Fall sem þetta hefur ekki sést í tæpt 21 ár, eða síðan í október árið 1987, samkvæmt upplýsingum Bloomberg-fréttastofunnar.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira