Enginn vöxtur í farsímasölu á árinu 28. maí 2008 15:06 Stúlkur veifa farsímum sínum. Ekki er reiknað með því að farsímaeigendur skipti út gömlu farsímunum sínum fyrir nýja á árinu.
Sala á farsímum dróst saman um sextán prósent í Evrópu á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta kemur fram í nýrri úttekt markaðsrannsóknarfyrirtækisins Gartners. Þetta er fyrsti samdrátturinn sem fyrirtækið hefur greint í álfunni síðastliðin sjö ár. Þrátt fyrir samdráttinn jókst farsímasala á nýmörkuðum um þrettán prósent. Vöxturinn var mestur á Indlandi og í Kína, samkvæmt Gartner. Fyrirtækið segir lítið framboð á nýjum farsímum í Evrópu skýra samdráttinn auk þess sem langtímasamningar farsímafyrirtækja viðskiptavinum hægara um vik að skipta um síma. Þá hafa neytendur haldið þéttar um budduna en áður upp á síðkastið og dregið mjög úr kaupum á dýrari símum. Sem dæmi féll sala á dýrari gerðum farsíma í Bandaríkjunum um heil fjörutíu prósent á fyrsta ársfjórðungi sé miðað við sama tíma í fyrra. Gartner reiknar með því að farsímasala muni glæðast á seinni hluta ársins en þá senda fyrirtækin frá sér nýja síma. Gartner reiknar með því að sala á farsímum muni aukst um tíu til fimmtán prósent á nýmörkuðum á þessu ári og halda meðalsölunni uppi vegna samdráttar á öðrum mörkuðum. Ekki er reiknað með aukningu í farsímasölu á árinu í heild, að mati Gartners.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira