Ágæt byrjun á evrópskum fjármálamörkuðum 21. maí 2008 09:38 Miðlarar í samnorrænum kauphallarsamstæðu OMX.
Gengi hlutabréfa hefur almennt hækkað á helstu hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag þrátt fyrir skell bæði í Bandaríkjunum í gærkvöldi og í Asíu í morgun. Helsta ástæðan fyrir lækkun á mörkuðum vestanhafs í gær er snörp verðhækkun á hráolíuverði, sem fór í methæðir, rúma 129 dali á tunnu, og aukinn verðbólguþrýstingur. Dow Jones-vísitalan lækkaði á endanum um 1,53 prósent og Nasdaq-vísitalan um 0,95 prósent. Þessar væntingar auk vísbendinga um auknar afskriftir hjá fjármálafyrirtækjum ollu því að Nikkei-vísitalan lækkaði um 1,65 prósent. Það sem af er degi hefur FTSE-vísitalan í Bretlandi hækkað um 0,95 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi um 0,36 prósent og Cac 40-vísitalan í Frakklandi um 0,46 prósent. Kippur hefur sömuleiðis verið á norrænum mörkuðum. Mesta hækkunin það sem af er degi er í kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi en aðalvísitalan þar í landi hefur hækkað um 0,35 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira