Gústaf veldur olíuverðshækkun 27. ágúst 2008 14:00 Dælt á bílinn. Verð á eldsneyti og olíu hefur hækkað talsvert frá í fyrra. Mynd/AFP
Fellibylnum Gústaf er um að kenna að heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað um rúma 2,6 dali á tunnu í dag og fór í rúma 117 dali á tunnu. Fellibylurinn olli talsverðum usla á Haítí í gær en reiknað er með að hann komi sterkur inn á Mexíkóflóa síðar í vikunni og nemi land í Bandaríkjunum á mánudag. Fimmtungur af olíuframleiðslu Bandaríkjanna er við flóann og setur minnsta skerðing á olíuframleiðslu skarð í heildarframleiðsluna. Olíufélagið Shell, sem er með starfsemi við flóann, hefur gefið það út að svo kunni að fara að starfsmenn verði fluttir á brott síðar í dag gangi spár veðurfræðinga eftir. Gengisveiking bandaríkjadals gagnvart evru vegur sömuleiðis þungt en við veikinguna kaupa fjárfestar oft olíu til sér varnar. Bandaríska orkumálaráðuneytið birtir vikulega skýrslu sína um olíubirgðastöðu landsins síðar í dag. Sérfræðingar telja flestir að vegna minnkandi eftirspurnar eftir olíu og eldsneyti muni hráolíubirgðir aukast um 1,5 milljónir tunna á milli vikna. Heimsmarkaðsverðið fór í rúma 147 dali á tunnu í júlí. Þrátt fyrir mikla lækkun síðan þá er það engu að síður rúmlega 60 prósentum hærra en á sama tíma og í fyrra.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira