Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 20. ágúst 2026 13:50 Hui Ka Yan var á árum áður auðugasti maður Asíu. Hann er 67 ára gamall en var í morgun dæmdur í lífstíðarfangelsi. AP/Dómstóll í Shenzhen, Xinhua Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína.
Auk hans hlutu 56 aðrir tengdir Evergrande dóma í morgun. Félagið skuldaði rúmlega 36 billjónir króna (tólf núll), þegar yfirvöld í Kína byrjuðu að taka á ofskuldsetningu á fasteignamarkaði í Kína árið 2020. Lítið fékkst upp í kröfurnar, þó hald hafi verið lagt á allar eigur auðjöfursins fyrrverandi. Hui, sem er 67 ára gamall og hefur ekki sést opinberlega síðan hann var handtekinn árið 2023, gekkst í apríl við átta ákærum sem snúa að ýmiskonar fjársvikum. Hann var dæmdur í morgun en tvö félög hans voru sektuð um hundruð milljarða. Evergrande Group var sektað um 158 milljarða króna og Evergrande Real Estate Group um 126 milljarða, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Hundruð þúsund sátu eftir með sárt ennið Evergrande var stofnað árið 1996. Það varð að endingu að stærsta fasteignafélagi Kína en sá markaður var og er gífurlega umfangsmikill. Árið 2023 var fasteignamarkaðurinn um fjórðungur af landsframleiðslu Kína. Kínverska ríkið hafði lengi keyrt hagvöxt á gífurlegri fasteignauppbyggingu, sem var að miklu leyti fjármögnuð með skuldsetningu. Félagið safnaði miklum skuldum í gegnum árin en árið 2020 breyttu ráðamenn í Kína reglum um magn peninga sem stór fasteignafélög mættu fá lánaða. Það leiddi til þess að forsvarsmenn Evergrande fóru að selja eignir sínar á miklum afslætti, til að halda fyrirtækinu á floti. Evergrandi skildi eftir sig hundruð ókláraðra bygginga víðsvegar um Kína og hundruð þúsunda Kínverja sátu eftir með sárt ennið. Félagið var loks tekið af markaði í fyrra. Reuters segir að mikil reiði ríki enn meðal þessa fólks. Í hópi þeirra á kínverskum samfélagsmiðli megi til að mynda finna ummæli um að almenningur hafi greitt fyrir fall Evergrande. Hui hafi eingöngu verið dæmdur í fangelsi svo hann yrði ekki myrtur á götu út. „Hvað með peningana okkar?“ stóð í einni færslu.
Kína Erlend sakamál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira