ÍH í slæmum málum vegna hegðunar þjálfarans Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2008 17:25
Allt útlit er fyrir að ÍH missi sæti sitt í 2. deild karla eftir að liðinu var dæmdur 3-0 ósigur gegn Tindastóli í dag. Umræddur leikur var í lokaumferð deildarinnar og vann ÍH leikinn, 1-0. Með sigrinum komst ÍH upp í 24 stig í deildinni og bjargaði sér þar með frá falli. Hins vegar er ljóst að samkvæmt úrskurðinum er ÍH með 21 stig og dugir það liðinu ekki til að halda sæti sínu í deildinni þar sem Hamar er með 22 stig. Hvergerðingar halda því sæti sínu í deildinni. ÍH hefur þó fimm virka daga til að áfrýja dóminum og gæti því þetta mál dregist á langinn. Tindastóll kærði úrslit leiksins þar sem forráðamönnum liðsins þótti afskipti þjálfarans, Mikaels Nikulássonar, of mikil af leiknum en hann tók út leikbann í leiknum. ÍH mótmælti því ekki að Mikael hafi verið í leikbanni en þá sem leikmaður - ekki sem þjálfari. Engu að síður var Mikael á áhorfendasvæði á meðan leiknum stóð. Þessu hafnar dómstóllinn og telur að Mikael hafi brotið reglugerð KSÍ, meðal annars þar sem hann var í vallarhúsi og starfsmannaaðstöðu innan við klukkustund fyrir leikinn og farið inn á völlinn í leikslok, áður en dómarar gengu til búningsklefa sinna. ÍH var einnig sektað um 15 þúsund krónur vegna málsins.
Íslenski boltinn Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Sjá meira