Golf

Fimm­tán ára með besta hring dagsins á Ís­lands­mótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Halldór Jóhannsson hélt upp á fimmtán ára afmælið sitt í apríl síðastliðnum.
Halldór Jóhannsson hélt upp á fimmtán ára afmælið sitt í apríl síðastliðnum. @gsigolf

Hinn bráðefnilegi Halldór Jóhannsson úr Golfklúbbnum Keili lék best allra kylfinga á öðrum keppnisdegi Íslandsmótsins í golfi sem fram fór á Korpúlfsstöðum í dag.

Halldór lék hringinn á 67 höggum, fjórum höggum undir pari, í krefjandi aðstæðum en það var afar blautt í dag.

Keilismaðurinn fékk fimm fugla og einn skolla á hringnum. Hann situr nú í fimmta sæti karlaflokksins á einu höggi undir pari þegar mótið er hálfnað.

Halldór er fæddur í apríl 2011 og verður því ekki sextán ára fyrr en næsta vor.

Á fyrsta hringnum í gær byrjaði Halldór af krafti með því að ná þremur fuglum á fyrri níu en það gekk ekki nógu vel á þeim seinni níu og hann endaði fyrsta hringinn á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari.

Halldór lét það ekki buga sig heldur byrjaði í dag með tveimur fuglum á fyrstu þremur holunum og alls var hann með þrjá af fuglunum sínum á fyrri níu.

Enginn annar kylfingur náði að leika á fjórum höggum undir pari í dag en Dagbjartur Sigurbrandsson sem er í forystu og þeir Kristófer Orri Þórðarson og Veigar Heiðarsson léku báðir á þremur höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×