„Auðvitað var auka hjartsláttur“ Aron Guðmundsson skrifar 22. ágúst 2026 09:31 Dagbjartur Sigurbrandsson, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi Vísir/Bjarni Ríkjandi Íslandsmeistari í golfi síðustu tveggja ára, Dagbjartur Sigurbrandsson er stoltur af því að hafa tekist að verja titilinn stóra á heimavelli. Hann stefnir langt í íþróttinni og slær ekkert af á næstunni.
Dagbjartur er nú tvöfaldur meistari og titilvörn hans gekk eins og í sögu á hans heimavelli, Korpúlfsstaðavelli. Dagbjartur hefur alist steinsnar frá vellinum og því um afar sérstakan áfanga að ræða. „Það var virkilega gaman. Ég er stoltur af mér fyrir að hafa náð því, sérstaklega á heimavelli. Að ná að verja titilinn var mjög sætt. Auðvitað var auka hjartsláttur á fyrsta teig. En eftir fyrsta teighöggið leið manni bara nokkuð vel og náði að spila sitt golf. Þá kannski tók maður frekar þá stefnuna að þessu að ná bikarnum aftur fremur en að verja hann. Það var gaman að ná því.“ Hvort var erfiðara. Að sækja titilinn í fyrsta skiptið eða að verja hann? „Örugglega fyrsta skiptið. Að upplifa það keppa þá við hörku spilara eins og Axel Bóasar og Aron Snæ í lokaholli. Reynslan af því hjálpaði mér mikið í þessu móti. Að halda áfram að sækja, gefa ekkert eftir.“ Með augun á PGA mótaröðinni Íslandsmeistarinn mátti ekkert vera að því að slaka á því næsta morgun eftir að hafa varið titilinn hélt hann út til Svíþjóðar og tók þátt á móti þar. „Mótið var í Malmö og aðstæðurnar allt öðruvísi, hitastigið, völlurinn harðari og flatirnar hraðari. Maður þurfti því að vera mjög fljótur að aðlagast og gíra sig upp í annað mót. Ég náði að tækla það vel og var ánægður með mótið. Ég er að klára Nordic mótaröðina núna og framundan er úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina sem byrjar 8. september í Þýskalandi. Það eru þrjú stig og maður vill bara komast alla leið. Fyrsta árið eftir háskólann er maður alltaf að reyna byggja upp sinn eigin feril. Ég vil enda á PGA mótaröðinni eða Evrópumótaröðinni. Það er markmiðið og hefur alltaf verið draumurinn.“Viðtalið við Dagbjart má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Íslandsmótið í golfi Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira