Græn ljós kviknuðu á síðustu metrunum 22. febrúar 2008 21:32
Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum tók kipp upp á við á síðasta hálftímanum sem markaðir voru opnir vestanhafs í dag. Stærstan þátt í viðsnúningnum á á CNBC sjónvarpsfréttastöðin vestra, sem greindi frá því skömmu fyrir lokun markaða að snemma í næstu viku verði greint frá jákvæðum fréttum sem komi skuldatryggingafyrirtækinu Ambac Financial Group til bjargar. Fyrirtækið hefur átt við mikinn vanda að stríða í kjölfar lausafjárkrísunnar og lánshæfiseinkunnir fyrirtækisins lækkaðar, að sögn fréttastofunnar Associated Press. Í kjölfar fréttarinnar rauk gengi bréfa í fyrirtækinu upp um 16 prósent og smitaði það mjög hratt út frá sér. Hlutabréf hafa lækkað talsvert vestanhafs í vikunni þar sem verðbólga hefur aukist auk þess sem hagvísar benda til að samdráttarskeið sé yfirvofandi. Þá er fátt í spilunum sem bendir til að bandaríski seðlabankinn muni halda áfram snörpu vaxtalækkunarferli heldur muni hann horfa til þess að draga úr verðbólgu.Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,79 prósent og Nasdaq-vísitalan um 0,16 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira