Deilur vegna samnings um eldsneytisflugvélar 1. mars 2008 13:49 Eldsneytisflugvél KC-135 undirbýr að gefa B-52 sprengiflugvél eldsneyti á flugi. MYND/AFP
Deilur hafa sprottið upp í bandaríska þinginu vegna samnings sem gerður hefur verið við evrópska flugvélaframleiðandann Airbus og Northrop Grumman um framleiðslu eldsneytisflugvéla fyrir bandaríska herinn. Þingmenn frá Washington og Kansas eru æfareiðir vegna samningsins en í ríkjum þeirra eru einmitt verksmiðjur Boeing flugvélaframleiðandans. Boeing verður af rúmlega 2.600 milljörðum króna við að missa samninginn, eða sem samsvarar 40 milljörðum bandaríkjadala. Vélarnar verða settar saman í Alabama í Bandaríkjunum en smíðaðar að mestu leiti í Evrópu. Boeing segist bíða útskýringa frá hernum áður en ákveðið verði hvort ákvörðuninni verði áfrýjað. Í yfirlýsingu þingmanns frá Seattle segir að mikil reiði ríki vegna ákvörðunarinnar um að framleiðsla flugvéla fyrir Bandaríkjaher fari til Evrópu. Nýja eldsneytisflugvélin fær nafnið KC-45A í bandaríska flughernum. Hún er byggð á grunni Airbus A330 og verður framleidd í samvinnu við bandaríska varnarfyrirtækið Northrop Grumman. Vélin mun geta dælt eldsneyti á flestar orrustuflugvélar Bandaríkjahers í lofti. Fréttavefur BBC segir samninginn áfall fyrir Boeing. Bandaríkin eiga um tvo þriðju allra eldsneytisflugvéla sem eru í notkun í heiminum. Einn yfirmanna Boeing sagði að ef Bandaríkjamenn misstu samninginn gæti það leitt til þess að þeir yrðu utan eldsneytisflugvélamarkaðarins í mörg ár.
Viðskipti Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira