Kröfuhafar í þrotabú Sterling fá ekkert 27. mars 2009 15:16
Kröfuhafar í þrotabú Sterling flugfélagsins í Danmörku fá ekkert upp í kröfur sínar. Á vefsíðunni business.dk segir að þeir smáaurar sem fundust á kistubotni félagsins fari í að greiða upp í kröfur frá ábyrgðasjóði launa í Danmörku. Alls gerðu 9.590 aðilar kröfur í þrotabúið og skýrist fjöldinn af því að margir sem keypt höfðu flugmiða hjá Sterling skömmu fyrir þrotið vildu fá þá endurgreidda af þrotabúinu. Tina Meilvang hjá lögmannastofunni Plesner segir í samtali við Ritzau að launagreiðslur séu forgangskröfur umfram allar aðrar í þrotabúið. Og það sem eftir var í félaginu nægði ekki til að greiða launin. Samtals námu kröfurnar í þrotabúið 1,1 milljarði danskra kr. eða tæplega 22 milljörðum kr. Daginn sem Sterling varð gjaldþrota, sama dag og greiða átti starfsfólki laun, voru aðeins um 40 milljónir danskra kr. til inn á reikningum félagsins.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira