Birgir Leifur bætti sig um átta högg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. júní 2009 13:03 Birgir Leifur Hafþórsson. Nordic Photos / Getty Images
Góðar líkur eru á því að Birgir Leifur Hafþórsson komist í gegnum niðurskurðinn á móti í Frakklandi eftir góðan hring í dag. Birgir Leifur lék á 68 höggum í dag og bætti sig þar með um átta högg frá því í gær. Hann er sem stendur í 49.-62. sæti á tveimur höggum samtals yfir pari. Fjölmargir kylfingar eiga þó enn eftir að klára í dag og þarf hann því að bíða til að sjá hvort hann komist í gegnum niðurskurðinn. Sem stendur komast allir þeir sem eru á þremur höggum yfir pari í mesta lagi. Miðað við núverandi stöðu náði Birgir Leifur að lyfta sér upp um 72 sæti frá því í gær. Hann náði þeim frábæra árangri að fá örn á níundu holu sem er 457 metra löng og par 5. Hann fékk þar að aujki þrjá fugla en tvo skolla.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira