Gull selt eins og gosdrykkir úr sjálfsölum í Þýskalandi 18. júní 2009 10:06
Þjóðverjar geta brátt keypt sér gull eins og gosdrykki úr þar til gerðum sjálfsölum sem komið verður upp á 500 stöðum í landinu, þar á meðal járnbrautarstöðvum og flugvöllum. Það er fyrirtækið TC-Gold-Super Markt í Stuttgart sem stendur fyrir þessum sjálfsölum en ætlunin er að annan eftirspurn almennings eftir gulli með þessu. Eftirspurnin hefur aukist gífurlega í fjármálakreppunni og hefur heimsmarkaðsverð á gulli hækkað um 30% frá áramótum. Í fyrrgreindum sjálfsölum geta Þjóðverjar keypt sér gramm af gulli á 30 evrur, 10 gramma gullstöng á 245 evrur og ýmsa gullpeninga. Sjálfsalarnir verða vaktaðir með öryggismyndavélum til að koma í veg fyrir peningaþvætti. Í frétt um málið í blaðinu Daily Telegraph er haft eftir Thomas Geissler talsmanni TC-Gold-Super Markt að sögulega séð hafi Þjóðverjar ætíð vilja liggja með stóran hluta af persónulegum fjármunum sínum í gulli. „Gull er traustur hlutur til að hafa í vasanum þegar óöruggir tímar ganga yfir," segir Geissler.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira