Uppgjör Deutche Bank yfir væntingum 28. júlí 2009 08:30
Þýski stórbankinn Deutsche Bank skilaði mjög góðu uppgjöri á öðrum ársfjórðungi, töluvert yfir væntingum sérfræðinga. Hagnaður bankans á tímabilinu nam 1,1 milljarði evra eða rúmlega 180 milljörðum kr. Það er einkum fjárfestingahluti bankans sem er á mikilli siglingu en hann skilaði 5,3 milljörðum evra í tekjur sem er 84% aukning frá sama tímabili í fyrra og nam þetta tveimur þriðju af heildatekjum bankans í ár. Bankinn ákvað að leggja einn milljarð evra inn á afskriftarsjóð sinn til að mæta töpuðum útlánum en í fyrra nam þessi upphæð 135 milljónum evra. Josef Ackermann forstjóri Deutsche Bank segir í tilkynningu um uppgjörið að niðurstaðan sé „vel ásættanleg" . Jafnframt segir hann að þótt framvinda efnahagsmála sé áfram óviss hafi bankinn séð að stöðugleiki er að komast á bankarekstur og fjármálamarkaði í heiminum.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira