Valdís Þóra heldur eins höggs forskoti á Ástu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2009 15:04 Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni. Mynd/Golfsamband Íslands
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er áfram efst í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik í Grafarholtinu en keppni er lokið á öðrum degi. Valdís Þóra lék á 76 höggum í dag alveg eins og Ásta Birna Magnúsdóttir og hélt því eins höggs forskoti sínu. Valdís Þór hefur leikið fyrstu 36 holurnar á 8 höggum yfir pari en Ásta Birna hefur leikið þær á 9 höggum yfir pari. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Helena Árnadóttir, lék einnig á 76 höggum og er í þriðja sæti á 11 höggum yfir pari. Það er ekki langt á milli efstu kvenna því í 4. til 8. sæti eru síðan fimm konur jafnar á tólf höggum yfir pari eða fjórum höggum á eftir Valdísi. Þetta eru þær Signý Arnórsdóttir úr GK, Tinna Jóhannsdóttir úr GK, Þórdís Geirsdóttir úr GK, Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO og Ragna Björk Ólafsdóttir úr GK. Staða efstu kylfinga eftir tvo hringi hjá konunum 1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 74-76 +8 2. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK 75-76 +9 3. Helena Árnadóttir, GR 77-76 +11 4. Signý Arnórsdóttir, GK 79-75 +12 4. Tinna Jóhannsdóttir, GK 78-76 +12 4. Þórdís Geirsdóttir, GK 78-76 +12 4. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 77-77 +12 4. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK 77-77 +12 9. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 78-77 +13 10. Berglind Björnsdóttir, GR 78-78 +14
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira