Hamarsmenn þurfa að bíða lengur - töpuðu fyrir Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2009 22:08 Robert Hodgson stjórnaði Valsmönnum til sigurs á Hamar í kvöld. Mynd/Arnþór
Valur vann topplið 1. deildar karla í körfubolta, Hamar, 82-80, í æsispennandi framlengdum leik í Vodafone-höllinni í kvöld. Valsmenn komu því í veg fyrir að Hvergerðingar tryggðu sér endanlega sætið í Iceland Express deildinni. Jason Pryor tryggði Hamar framlengingu með þriggja stiga körfu 32 sekúndum fyrir leikslok en honum mistókst síðan að skora sigurkörfu liðsins bæði í lok venjulegs leiktíma sem og í lok framlengingarinnar. Lokaskot hans í framlengingunni endaði á hringum eftir að Steingrímur Gauti Ingólfsson hafði skoraði sigurkörfu Valsmanna. Ragnar Gylfason skoraði 20 stig fyrir Val og Steingrímur var með 15 stig. Marvin Valdimarsson skoraði 27 stig fyrir Hamar og Jason Pryor var með 23 stig. Haukar unnu fjórtán stiga sigur á KFÍ á Ísafirði og eiga því enn tölfræðilega möguleika á að vinna deildina en Haukaliðið þarf reyndar að vinna upp 147 nettóstiga forskot Hamars í lokaumferðinni. Sigur Vals á Hamar þýðir að liðið á enn möguleika á öðru sætinu í deildinni en til þess þarf liðið að vinna Hauka á Ásvöllum í lokaumferðinni. Það verður algjör úrslitaleikur um 2. sætið og þar með heimavallarrrétt út alla úrslitakeppnina. Hamar mætir nágrönnum sínum úr Þór Þorlákshöfn á heimavelli í lokaumferðinni en Þór tapaði 64-94 á heimavelli fyrir Fjölni í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Handbolti Fleiri fréttir Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Sjá meira